Viðhald fasteigna

viðhald fasteigna

Steind býður upp á sérhæfða þjónustu og faglega ráðgjöf í tengslum við 
viðhaldsframkvæmdir bygginga, þar á meðal gerð framkvæmdaáætlana, útboða og eftirlit 
með framkvæmdum. Að fá faglega ráðgjöf og sérhæfða þjónustu við undirbúning, 
framkvæmd og mat mannvirkja skilar bæði fjárhagslegum og rekstrarlegum ávinningi til 
lengri tíma litið. Með markvissri nálgun er hægt að draga úr áhættu, bæta ákvarðanatöku og tryggja gæði framkvæmda. Steind býður upp á eftirtalda þjónustu í viðhaldsframkvæmdum:  
 
  • Gerð framkvæmdaráætlana
  • Útboð og eftirlit með framkvæmdum
  • Ástandsskoðun þar á meðal vegna raka og myglu
  • Matsmaður/dómkvaddur matsmaður 
 
Gerð framkvæmdaráætlana 
Með vönduðum framkvæmdaráætlunum fæst skýr yfirsýn yfir umfang verkefna, tímaramma og kostnað. Þetta auðveldar skipulag, dregur úr óvissu og minnkar líkur á ófyrirséðum töfum 
eða kostnaðarauka. Steind aðstoðar við gerð vandaðra framkvæmdaráætlana þar sem 
skilgreindir eru verkþættir, tímasetningar, kostnaðaráætlanir og tæknilegar forsendur. 
Markmiðið er að tryggja skilvirka framkvæmd, góða yfirsýn og lágmarka áhættu á töfum eða 
kostnaðarfrávikum. 
 
Útboð og eftirlit með framkvæmdum 
Veitt er ráðgjöf og þjónusta við undirbúning og framkvæmd útboða, þar á meðal gerð 
útboðsgagna, greiningu tilboða og aðstoð við samningsgerð. Jafnframt getur Steind sinnt 
eftirliti með framkvæmdum til að tryggja að verk séu unnin í samræmi við samninga, 
teikningar, verklýsingar og gæðakröfur. 
 
Útboð framkvæmda getur skilað bæði hagkvæmari verktíma og betri 
kostnaðarfyrirsjáanleika. Þegar útboð eiga ekki við aðstoðum við viðskiptavini við að finna 
hæfa og áreiðanlega fagmenn, þar sem réttindi, gæðakerfi og reynsla eru vandlega metin. 
Steind sinnir jafnframt gerð verksamninga og tryggir faglega umgjörð verkefna frá upphafi til 
enda, óháð stærð þeirra. 
 
 Ástandsskoðun mannvirkja 
Steind framkvæmir ástandsskoðanir á mannvirkjum með það að markmiði að meta ástand 
bygginga, greina galla, slit eða skemmdir og leggja mat á viðhalds- eða endurbótaþörf. 
Sérstök áhersla er lögð á skoðanir vegna raka og myglu, þar sem notast er við viðurkenndar aðferðir og faglegt mat. 
 
Dómkvaddur matsmaður 
Fulltrúi Steindar tekur að sér að útbúa matsgerðir vegna ástand fasteignar, galla á 
framkvæmdri þjónustu og/eða vegna ágreinings, ýmist sem dómkvaddur matsmaður eða 
samkvæmt almennri beiðni.  Matsgerð er unnin óháð, hlutlaus og í samræmi við faglega 
staðla.