Húsfélög og félagasamtök

Steind veitir heildstæða eignaumsjón og viðhaldsþjónustu fyrir einstaklinga, félög, húsfélög og fasteignafélög, jafnt vegna afmarkaðra verkefna sem langtímasamstarfs. Þjónustan hentar eigendum sem óska eftir því að úthýsa skipulagi, framkvæmd og eftirfylgni verkefna til fagaðila.

Ráðgjöf vegna viðhalds og reksturs fasteigna

Einstök verkefni eða atvik þar sem eigendur eða stjórnir þurfa á fagaðila að halda til að styðja við upplýsta ákvörðunartöku.

Eftirlit með framkvæmdum

Óháð eftirlit með nýbyggingum og viðhaldsframkvæmdum, með áherslu á gæði, verkferla og verklok.

Eignaumsjón verkefna

Fyrir minni eða afmörkuð verkefni þar sem allri framkvæmd er úthýst til Steindar. Steind sér þá um skipulag, öflun viðeigandi fagaðila, framkvæmd verks og eftirlit fram að verklokum.

Viðhaldsáskrift eigna

Lausn fyrir stærri eða minni verkefni, til dæmis fyrir félög, húsfélög og félagasamtök með stærra eignasafn. Með áskrift er viðhaldi og daglegri umsjón fasteigna úthýst til Steindar.

Útboð framkvæmda getur skilað bæði hagkvæmari verktíma og betri kostnaðarfyrirsjáanleika. Þegar útboð eiga ekki við aðstoðum við viðskiptavini við að finna hæfa og áreiðanlega fagmenn, þar sem réttindi, gæðakerfi og reynsla eru vandlega metin. Steind sinnir jafnframt gerð verksamninga og tryggir faglega umgjörð verkefna frá upphafi til enda, óháð stærð þeirra.