Steind tekur að sér verkefni sem byggingarstjóri, verkefnastjóri og/eða óháður eftirlitsmaður
við nýbyggingar. Þjónustan miðar að því að tryggja faglega, örugga og skilvirka framkvæmd
nýbygginga í samræmi við lög, reglugerðir, samþykktar teikningar, tímaáætlanir,
kostnaðaráætlanir og gæðakröfur verkkaupa.
Byggingarstjórnun
Verkefnastjórn og/eða eftirlit
Gerð framkvæmdaáætlana
ByggingarstjórnByggingarstjóri sinnir lögbundnu hlutverki samkvæmt mannvirkjalögum og ber ábyrgð á aðframkvæmd sé í samræmi við gildandi reglur. Steind tekur að sér að sinna lögbundu hlutverkibyggingarstjóra við nýframkvæmdir.
Helstu verkefni:
Samskipti við byggingarfulltrúa og leyfisveitandi aðila
Eftirlit með að framkvæmd samræmist byggingarleyfi og samþykktum teikningum
Umsjón með gæðakerfum, skráningum og verkferlum
Eftirlit með öryggi og heilbrigði á vinnustað
Þátttaka í lokaúttektum og afhendingu mannvirkis
Verkefnastjórn
Steind býður upp á verkefnastjórn. Verkefnastjórn tryggir heildaryfirsýn verkefnisins með
áherslu á tíma, kostnað, gæði og samræmingu aðila.
Helstu verkefni:
Skipulag og samræming verkefnis frá undirbúningi til afhendingar
Eftirfylgni með tíma- og kostnaðaráætlunum
Samræming hönnuða, verktaka og annarra hagaðila
Umsjón með verkfundum og upplýsingagjöf til verkkaupa
Umsjón með breytingum og frávikum í samráði við verkkaupa
Eftirlit með framkvæmdum
Steind býður upp á óháð byggingareftirlit. Eftirlit tryggir að framkvæmdir séu unnar í
samræmi við regluverk, samninga, teikningar og faglegar kröfur.