Ástandsskoðun vegna fasteignakaupa og leigu

Ástandsskoðanir vegna fasteignakaupa

Fasteignakaup eru að jafnaði stærsta fjárfesting einstaklinga. Því er afar mikilvægt að liggi 
fyrir áreiðanlegar upplýsingar um ástand fasteignar áður en skuldbindandi ákvörðun er tekin. 
 
Við gerð tilboðs kann jafnframt að vera nauðsynlegt að gera ráð fyrir viðhaldi eða 
framkvæmdum sem ekki koma glöggt í ljós við hefðbundna yfirborðsskoðun. 
 
Steind veitir faglega ástandsskoðun fasteigna fyrir væntanlega fasteignakaupendur og 
leigusala og býður upp á tvær þjónustuleiðir: 
 
  • Ástandsskoðun með skýrslugerð
  • Ástandsskoðun án skýrslugerðar 
 
Við ástandsskoðun er meðal annars lagt mat á sýnilegt ástand helstu byggingarhluta og kerfa 
fasteignar. Jafnframt er vakin athygli á áætluðum líftíma einstakra þátta húseigna, eftir því 
sem unnt er, enda getur verið erfitt að leggja slíkt mat á grundvelli yfirborðsskoðunar einnar. 
 
Verð eru gefin upp með virðisaukaskatti og miðast við fasteignir allt að 120 fermetrum að 
stærð. Mikilvægt er að fram komi við pöntun hvaða þjónusta er valin, þar sem myndataka er 
nauðsynleg þegar skýrslugerð er hluti þjónustunnar. 
 
Verð: 
  • Ástandsskoðun vegna fasteignakaupa án skýrslu (svokölluð „pabbaskoðun“): 70.000 kr.
  • Ástandsskoðun vegna fasteignakaupa með skýrslu: 180.000 kr. 

Ástandskoðun vegna fasteignakaupa án skýrslu “pabbaskoðun“

Ítarleg skoðun á fasteign að innan og utan með væntanlegum kaupendum þar sem staldrað er við helstu atriði sem kaupendur verða að hafa í huga við fasteignakaup. Ekki eru teknar myndir né gerð skýrsla.

Ástandsskoðun fasteigna með skýrslu

Ítarleg skoðun á fasteign með væntanlegum kaupendum þar sem fasteign er yfirfarin að utan og að innan, teknar eru myndir af helstu áhættuþáttum fasteignar og gerð skýrsla þar um.

Ástandsskoðun fasteigna við útleigu

Steind býður upp á faglega ástandsskoðun fasteigna við upphaf og lok útleigu. Markmið 
skoðunarinnar er að skrá sýnilegt ástand eignar, draga úr ágreiningi milli aðila og skapa 
skýran grundvöll fyrir ábyrgð og viðhald. Að lokinni skoðun er útbúin skýrsla með helstu 
athugasemdum og ljósmyndum eftir því sem við á, í samræmi við leiðbeiningar HMS um 
yfirlýsingu um úttekt á íbúðarhúsnæði, sjá nánar hér. Verð eru gefin upp með virðisaukaskatti og miðast við fasteignir allt að 120 fermetrum að stærð. 
 
Verð:  
  • Ástandsskoðun vegna útleigu fasteignar með skýrslu: 80.000 kr. 

Ástandsskoðun vegna útleigu á íbúð

Ástandsskoðun, skýrslugerð og myndun íbúða í samræmi við útgefnar leiðbeiningar Húsnæðis og mannvirkjaskoðunar.